Hóta fjárfestum - Það er að pissa í skóinn sinn Lilja

Kocoa puffs "hagfræðingurinn" Lilja kemur með reglulegu millibili fram með "aðgerðaáætlun" sem ekki er heil brú í , ekki einu sinni hálf brú.  Hvernig í andskotanum dettur manneskjunni í hug að hægt sé að hóta eigendum krónubréfa því að eign þeirra verði að engu ef þeir gera ekki það sem stjórnvöldum þóknast?

Það virkar kanski í praxis í mánuð en dettur manneskjunni til hugar að slíkt mundi efla traust á Íslensku viðskiptalífi og laða að fjárfesta í framtíðinni? Ónei, þetta er leið sem aðeins N-Kóreumönnum dytti til hugar að beita.  

Lýðskrum Lilju er ekki lengur bara heimskulegt, það er hreinlega hættulegt að ljúga svona rugli að þjóðinni og reyna að afla fylgis með þessum hætti útá óvinsæla ríkisstjórn eins og Lilja er hér að gera og það ekki í fyrsta skipti.  Lýðskrumari dauðans og ekkert annað.


mbl.is Vill hóta eigendum snjóhengjunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ögmundur hefur aldrei verið vitlausari

Oft hefur hann nú verið tregur blessaður,- en aldrei eins vitlaus eins og eftir að hann varð ráðherra.  Hann er sennilega eini ráðherrann í Íslandssögunni (að undanskildu Ingjaldsfíflinu honum Jóni Bjarnasyni) sem heldur að hann sé í stjórnarandstöðu!

Ögmundur tilheyrir rikis- forréttindaelítunni.  Hann þóttist á árum áður berjast fyrir verkalýðinn en gerði aldrei nokkurn skapaðan hlut nema blaðra frá sér allt vit og eitt er ljóst að ekki hefur vitið komið til baka.  

Varðandi málefnið, þá er það nú þannig að ESB andstæðingar telja alltaf vitlaust að ganga í ESB. Þegar hér var bullandi góðæri þá var það ekki hægt því við þyrftum að borga svo mikið með okkur til fátæku þjóðanna í ESB.  Nú er það ekki hægt vegna kreppunnar hér og lélegrar samningsstöðu okkar!  

Eins og virkur alki finnur alltaf ástæðu til að drekka þá finnur Ömmi litli alltaf ástæðu til að bulla.


mbl.is „Aldrei vitlausara að ganga í ESB"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Hreyfingin að setja upp leikrit ?

Einhvernveginn virðist það skína úr orðum Þórs.  Ég allavega treysti Hreyfingunni mjög tæplega til þess að varpa fram einhverjum raunhæfum hugmyndum til lausnar á skuldavanda heimilanna.  Það er til lítils að moka peningum í skuldsett heimili ef ekki á á sama tíma að endurreisa atvinnulífið í landinu.  Án fjárfestinga og bætts atvinnuástand munu heimilin fljótlega sökkva í sama farið aftur.

Mig grunar að þingmenn Hreyfingarinnar séu að setja upp leikrit til þess að auka vinsældir sínar.  Strax eftir helgi slíta þessir þingmenn viðræðunum á þeim forsendum að "stjórnin vilji ekki taka á skuldavandanum" eða eitthvað slíkt.  Hreyfingin gætir þess að setja upp algjörlega óaðgengilegar kröfur sem byggjast á lýðskrumi en ekki raunveruleika.  Þannig vinnur þetta fólk og þessvegna getur enginn starfað með þeim, ekki einu sinni lýðskrumsflokkarnir Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur, hvað þá egó kocoa puffs "hagfræðingurinn" Lilja Mós.

Ríkisstjórnin mun ekki geta treyst á Hreyfinguna frekar en aðra lýðskrumara á borð við Lilju og villikattagrenið í VG.


mbl.is Aðstoða verður skuldsett heimili
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórnin sem gerir ekkert....

Hefur snúið þjóðaskútunni við svo nú er farinn að mælast hagvöxtur

hefur minnkað atvinnuleysið úr tæpum 10% í 6,5%

hefur fært niður skuldir fjölmargra heimila

hefur hækkað vaxtabætur um yfir 100%

....svona svo dæmi séu tekin.    Hvað ætli sjálfstæðisflokkurinn hefði hækkað vaxtabæturnar ykkar mikið?


mbl.is Kynna nýjar áherslur í atvinnumálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þar sem það verður að koma Ólafi frá ...

Þá skora ég á aðra frambjóðendur en Þóru að draga framboð sín til baka.  Ég hafð ætlað að kjósa Ara Trausta en það er ljóst að þetta er einvígi milli Ólafs og þóru.  Önnur framboð eru að mínu mati líklegri til þess að taka fylgi frá Þóru en Ólafi.  Ari Trausti er að mínu mati langsterkasti frambjóðandinn en fjölmiðlar hafa stillt þessu upp sem einvígi milli Ólafs og þóru.  Ari Trausti tilkynnti framboð sitt of seint því miður.

Ég tel það nánast skildu kjósenda að koma Ólafi frá enda er hann á góðri leið með að eyðileggja þetta embætti og honum tekst það vafalaust fái hann umboð þjóðarinnar til að starfa áfram.  Ég skora því á Ara Trausta og "litlu nöfnin" að draga framboð sín til baka og lýsa yfir stuðningi við Þóru.


mbl.is Þóra með mestan stuðning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skora á Framsóknarflokkinn að leggja sjálfan sig niður

...og flytja sig í heilu lagi á þjóðmynjasafnið.  það mundi fara honum vel að vera á sýningarbás með afleiðingum af Svarta Dauða og Móðuharðindunum.  Risaplaggat ætti að vera af Halldóri Ásgrímssyni, höfundi kvótakerfisins og núverandi milljarðamærings vegna kerfisins sem hann hannað fyrir sjálfan sig og nokkra vini í sjálfstæðisflokknum.

Framsóknarflokkurinn er tímaskekkja, nýji formaðurinn er rugludallur og þessi flokkur hefur aldrei gert nokkurn skapaðan hlut sem hefur komið að gagni fyrir þjóðina.  Best er því að frekara tjóni verði afstýrt og flokkurinn leggi sjálfan sig niður.


mbl.is Skorar á ríkisstjórn að biðjast lausnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forseti sundrungar og spillingarafla

...er herrra Ólafur Ragnar Grímsson.  Hann hefur í dag sem fyrr opinberað sitt eðli, þessi skækja útrásarvíkinga og sægreifa.  Svona forseta þarf þjóðin ekki á að halda.
mbl.is Tjáir sig ekki um ásakanir forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bessastaðaskækjan mætt til leiks með sitt skítlega eðli

Loksins heyrist eitthvað frá besta vini gullætnanna, sægreifanna og hinum sanna fulltrúa gamla Íslands.   Ólafur Ragnar Grímsson hefur starfað i flestum stjórnmálaflokkum sem stofnaðir hafa verið á Íslandi.  Nú allra síðustu ár hefur hann starfað fyrir sjálfstæðisflokkinn og verið með útibú frá Valhöll á Bessastöðum.  Hann hefur þó formlega aldrei gengið í sjálfstæðisflokkinn en þess verður varla langt að bíða enda er sjálfur Hannes grillmeistari farinn að mæra Bessastaðaskækjuna í bak og fyrir.

Ólafur sat við hlið útrásarvíkinga í einkaþotum, hann mætti með þeim í veislur þar sem gullkriddað heilgrillað svín var á matseðlinum.  Hann nældi í þá fálkaorður og þeir voru fastagestir í litla púttnahúsinu á Bessastöðum.

Alveg eins og í pólitíkinni forðum daga breyttust aðstæður og Óli þurfti að finna sér nýja vini- og óvini.  Eftir haustið 2008 var auðvitað mjög erfitt að bjóða landráðamönnunum til frekari veisluhalda á Bessastöðum.  Óli sá að róttækir þjóðernissinnar með Indefence í fararbroddi voru mjög að sækja i sig veðrið og auðvitað eins og sannri skækju sæmir, stökk hann á vagninn.

Í síðustu viku mærði Bessastaðaskækjan sægreifana og kvótakerfið í finu boði einhversstaðar í útlöndum- að vísu gerði hann ekki ráð fyrir því að einhverjir Íslendingar væru nálægt sem mundu "leka" þessum meinta nýja félagsskap skækjunnar.   Auðvitað þurfa sægreifar á hjálp Bessastaðaskækjunnar að halda enda blasir við þessum greyjum að þurfa að ganga á falda fjársjóði í skattaskjólum eða jafnvel fara í röðina hjá fjölskylduhjálpinni á miðvikudögum ef þeir verða látnir skila einhverju af ránsfeng síðustu áratuga til samfélagsins.

Bessastaðaskækjan er mætt til leiks með sitt skítlega eðli og eins og sönnun sjalla sæmir velur hann að ráðast á björgunarliðið sem hefur staðið vaktina með sóma við að koma þjóðinni uppúr kreppunni sem vinir og kúnnar Bessastaðaskækjunnar komu henni í.  Nú þekkjum við Ólaf Ragnar Grímsson.


mbl.is Segir Jóhönnu í herferð gegn sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grikkir vita að vinstri stjórn bjargaði Íslendingum og feta sömu slóð

Vinstri stjórn er að bjarga Íslensku þjóðinni uppúr kreppunni sem nýfrjálshyggjupakk kom henni í.  Það er engu líkara en að Grikkir hafi fengið veður af þessu enda er mikil vinstri sveifla í þessum kosningum.  Sennilega er lausn Grikkja útúr kreppunni sú sama og hér, henda burt hægra ruslinu og koma til valda fólki sem þorir, kann og getur axlað ábyrgð.
mbl.is Vill mynda vinstristjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland á fleygiferð útúr kreppunni

Þrátt fyrir dómsdagsspárs Sigmundar Davíðs og óráðshjal Bjarna Ben þá eru villtustu draumar þeirra svo sannarlega að snúast upp í hræðilega martröð.  Þessari ríkisstjórn er nefnilega að takast það sem þeir vita að þeim mundi aldrei takast sjálfum, að koma þjóðinni útúr kreppunni.  Það sem meira er, það hefur tekist án þess að auka skattbirðar á meginþorra almennings, aðeins þeir tekjuhæstu hafa orðið fyrir skattahækkunum. -  Við getum verið nokkuð sjúr á því að þannig hefði ekki verið ástatt ef þessir tveir jólasveinar hefðu farið með stjórn landsins undanfarin ár. 
mbl.is Umskipti á vinnumarkaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband