29.3.2012 | 11:39
Skammarlegt að þetta fyrirbæri sé þingmaður
Fáir ráðherrar í Íslandssögunni komast með tærnar þar sem Jón Bjarnason hefur hælana í vanhæfi. Hvernig nokkrum sæmilega heilbrigðum manni datt til hugar að gera hann að ráðherra er mér hulin ráðgáta. Hann drattaðist í 2 ár með frumvarp sem var svo gjörsamlega handónýtt og engu líkara en það hafi verið samið í höfuðstöðvum LÍÚ. - enda ljóst fyrir hvaða öfl þessu maður vinnur, laumusjalli eins og Lilja Mós.
Sjaldan heyrt aumari málflutning | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Bjarni Ben og Álfheiður Ingadóttir slá honum við....
Vilhjálmur Stefánsson, 29.3.2012 kl. 11:45
Sé ekki mikinn mun á Jóhönnu og Jóni!
Þorsteinn Þormóðsson, 29.3.2012 kl. 11:59
Já þetta fer alveg að verða gott með Jón.
Ögmundur og Jón eru ekki beint að rokka í stjórninni...
hilmar jónsson, 29.3.2012 kl. 12:17
Ert þú ekki alveg úti á yzta (vinstra?!) kanti í Jóhönnustjórnarauðsveipninni, Óskar Haraldsson? Hann nafni minn Bjarnason stendur með sjálfstæðis- og fullveldisréttindum Íslands, það er meira en sagt verði um Jóhönnu!!! Og nú vill meirihluti fyrirtækja í Samtökum iðnaðarins hvorki sjá né heyra Evrópusambandið né evruna!
Jón Valur Jensson, 29.3.2012 kl. 13:04
Mér finnst allt þetta lið sem situr og hefur setið í þessari stjórn gjörsamlega úti á túni og hefur í raun enga tilfinningu fyrir því sem er að gerast í þjóðfélaginu. Alveg sama hvort það er Jón, Jóhanna, Steingrímur, Ögmundur o.s.f.v. En kannski það versta er að það er varla hræða á alþingi í dag sem maður vildi kjósa, þá er það orðið slæmt.
Tryggvi Þórarinsson, 29.3.2012 kl. 14:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.