18.4.2012 | 00:33
Framsóknarfjóskarlar leika sér í flórnum
Það er ekki heil brú í þessum þingmannahóp framsóknar. Formaðurinn talar óskiljanlegum tungum- einn daginn lofar hann krónuna, þann næsta vill hann taka upp kanadadollar. Ég yrði ekki hissa ef hann vildi taka upp Tælenska bathið ef hann fær sér núðlurétt. Maðurinn er bara algjörlega gaga. Nú, lady gaga er líka í Framsóknarflokknum, stundum kölluð Vigdís. Það þarf nú eiginlega ekkert að ræða hana neitt frekar nema þá velta því fyrir sér hverní í ósköpunum hún komst á þing. Flestir aðrir framsóknarþingmenn eru á örlítið hærra plani, þó ekki mikið hærra. Þessi flokkur verður vonandi kosinn á þjóðminjasafnið í næstu kosningum.
Hvers konar kjaftæði er þetta? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sammála þér.
En Vigdís er tengdardóttir Guðna Ágúst... Guðni plantaði hana Vigdísi þarna til að berjast gegn ESB.
Hún komst ekki þarna á sínum eigin verðleikum... sem er augljóst.
Sleggjan og Hvellurinn, 18.4.2012 kl. 08:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.