16.10.2013 | 14:54
Bjöllusauðirnir á Rúv
Jæja nú bara getur maður ekki orða bundist. Tek fram að ég er algjörlega á móti sölu eða að einkavæða Rúv því þá færi bara enn einn fjölmiðillinn undir LíÚ náhirðina.
EN þetta fiaskó í gærkvöldi er ekkert hægt að afsaka. Í fyrsta lagi eru þeir sem lýsa íþróttaleikjum á Rúv algjörlega vonlausir, máttlausar og hreinlega leiðinlegar lýsingar, þarna standa menn á stöð2 langtum framar.
Svo þetta megaklúður að skella á auglýsingum þegar eitthvert stórkostlegasta moment Íslenskrar íþróttasögu átti sér stað, nákvæmlega þessar sekúndur þegar landsliðsmennirnir fengu að vita að þeir voru komnir í umspil! Hvað viðvaningur og vitleysingur var eiginlega við takkann ?
Fá augnablikið aldrei aftur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.