Siðblinda þessa hyskis er algjör

Maður er eiginlega algjörlega orðlaus og það gerist ekki oft.  Ég hélt satt að segja að Sjálfstæðisflokkurinn hefði einhvern snefil af siðferði en það hefur hann greinilega ekki.  Hvernig þingflokkurinn getur stutt ráðherra sem hefur brotið svo alvarlega af sér er óskiljanlegt, sorglegt og eiginlega sárgrætilegt fyrir alla þjóðina, ekki bara sjálfstæðismenn.  Ég hef heyrt í sumum sjálfstæðismönnum í dag sem meiraðsegja blöskrar þetta.  Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins er gjörsamlega siðblindur eins og hann leggur sig.

Vissulega var Hanna Birna ekki sú brotlega í upphafi.  Hún hinsvegar þvældist fyrir málinu á allan hátt, réðist á fjölmiðla sem fjölluðu um málið, laug að þjóð og þingi vísvitandi og kenndi jafnvel Rauða krossinum um lekann, svona á sama plani og Gísli Freyr sem kenndi skúringakonum um lekann, vitandi þess að hann gerði þetta sjálfur.

Hvernskonar hyski ræður eiginlega ríkjum í þessu landi ?  Þetta er ekkert minna en sorglegt.


mbl.is Hanna Birna nýtur stuðnings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband