18.1.2010 | 06:04
Aðalritari S.Þ. ætti að vita betur
Árið 2004 fórust um 300.000 manns í mörgum löndum í kringum Indlandshaf af völdum flóðbylgju sem varð vegna jarðskjálfta við Indónesíu sem mældist 9,1 á Ricter og var því amk. 20 sinnum öflugri en sá sem varð á Haiti. Flóðbygjan barst allt til Afríku og varð hundruðum að bana þar, mörg þúsund kílómetra frá upptökum þessa ofurjarðskjálfta.
Ekki dettur mér til hugar að gera lítið úr þessum hamförum á Haiti, þetta er alveg hræðilegur atburður sem hendir fólk sem átti nógu erfitt fyrir. En hamfarirnar við Indlandshaf á annari jólum árið 2004 mega aldrei gleymast enda einhverjar mestu náttúruhamfarir sem mannkynið hefur þurft að glíma við.
Mestu hamfarir í áratugi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.