8.4.2010 | 22:58
Lítil virðing fyrir náttúruöflunum
Þetta uppátæki þessara jackass jeppakarla er nú óneitanlega dálítið skondið þó maður hafi svona vafasaman fíling gagnvart því. Auglýsingin sem landið fær á sjálfsagt eftir að skila nokkrum túristum í hús síðar meir en heldur finnst manni lítil virðing borin fyrir náttúruöflunum. þeir virtu öryggisreglur - að vettugi! ,., en mér finnst þessar öryggisreglur reyndar hálfkjánalegar. Að banna fólki að fara nær hrauninu en í 1 km. fjarlægð held ég að sé óþarfi. Þetta er mjög seigfljótandi apalhraun á jafnsléttu, skríður kannski 1 meter á klukkustund eða svo og er víða reyndar hætt að renna. Svo mun það farið að kólna það mikið að sumstaðar festir orðið snjó á því.
Svona í lokin á þessu röfli mínu vil ég benda á nýja vefsíðu um eldgos - hún heitir að sjálfsögðu eldgos.is
Top Gear ók upp á heitt hraun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Mjög flott, vel unnin og greinlega metnaðarfull síða, eldgos.is. Til hamingju með hana, þ.e. ef þú ert eigandinn. Ég skildi eftir komment á henni.
Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 9.4.2010 kl. 00:12
Takk fyrir það Grefill. jú ég er eigandi, höfundur, hönnuður og alltsaman! Bæti efni á hana eftir því sem tími er til. Ætlaði reyndar að setja efni um fleiri eldstöðvakerfi inn áður en ég opnaði hana,, hafði bara ekki þolinmæði að bíða lengur - en ætla að eyða nóttinni í að skrifa eitthvað um Kötlu gömlu og vonandi næst það áður en nóttin er öll :) jamm sá kommentið!
Óskar, 9.4.2010 kl. 00:27
Ekki yfirkeyra þig, góðir hlutir gerast hægar en maður vonar, en samt alveg nógu hratt ef maður heldur áfram að gera þá. Það er staðreynd.
Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 9.4.2010 kl. 00:47
hehe neinei, nóttin er bara minn tími - þá vinn ég best!
Óskar, 9.4.2010 kl. 01:01
Tek undir með þér -
skoðaði síðuna þína - þakkir fyrir hana - hlakka til að fylgjast með þróun hennar -
Katla mun gjósa 2012 eða 2013. mín skoðun -
Ólafur Ingi Hrólfsson, 9.4.2010 kl. 04:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.