24.11.2010 | 18:12
Forsetinn sleikir upp kúgunarríki
Forseti Íslands er iðinn við að sleikja upp ríki þar sem mannréttindi eru álíka mikilvæg og karamellubréf sem fýkur eftir götu. Alkunna er dálæti hans á Kína þar sem tugir þúsunda eru í fangelsum landsins fyrir skoðanir sínar. Hann vill efla tengsl Íslands og Kína og hikar ekki við að fórna vináttu okkar við elstu lýðræðisríki heims í Evrópu þar sem mannréttindi eru virt.
Það kemur engum á óvart að forsetafíflið sleiki líka upp valdhafana í Íran. Ég yrði ekkert hissa á því að heyra næst að hann væri í opinberri heimsókn í Burma eða Norður Kóreu. Það er svona í stíl við allt annað hjá honum. Ég vil þennan mann burt úr embætti, hið snarasta.
Sérkennileg frásögn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Heill og sæll; Nafni minn, jafnan !
Hvað hefðir þú sagt; hefði ÓRG, heimsókt þá skúrka, Obama í Bandaríkjunum - og/ eða þá; Barrosó, Evrópusambandsleiðtoga ?
Eru þeir; ekki mestu böðlar, í veröld okkar, nú um stundir, nafni minn góður ?
Með kveðjum góðum; sem áður og fyrri /
Óskar Helgi
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 24.11.2010 kl. 18:29
Nafni hehe þú klikkar ekki á þessu :),,, Ég veit nú ekki hver þessi Berrassó er, þarf að googla hann. Obama er þó allavega lýðræðiskjörinn,,,jú vissulega hafa Bandaríkin margt ljótt á samviskunni.
Óskar, 24.11.2010 kl. 18:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.