Kúlulánadrottningin lifir allt af - líka kosningar

Því miður hefur ákveðinn hluti þjóðarinnar sannkallað húsfluguminni.  Þetta fólk virðist ekki muna fyrir horn, hvað þá lengra.  Gjörspilltur þingflokkur sjálfstæðisflokksins nýtur þess enda sitja á þingi fyrir flokkinn kúlulánaþegar, vafningar, dæmdur þjófur, styrkþegar og skattsvikarar svona svo einhver dæmi séu nefnd um "gæðin" í þingflokki sjálfstæðismanna.

Það er auðvitað engu um að kenna nema ákveðnum kjósendum.  Þessir kjósendur afneita algjörlega ábyrgð FLokksins á hruninu eins og Davíð og kenna bara gráhærðu gellunni um það ásamt flestu öðru sem aflaga fer.  

Staðreyndirnar eru nú samt einfaldlega þær að sjálfstæðisflokkurinn framkvæmdi efnahagslega kjarnorkuárás á þjóðina.  Honum var réttilega bolað frá völdum og síðustu ár hafa farið í sársaukafullt björgunarstarf.  Allan þann tíma hefur sjálfstæðisflokkurinn þvælst fyrir í einu og öllu- gert allt sem í hans valdi stendur til að leggja steina og heilu björgin í götu ríkisstjórnarinnar og þjóðarinnar á leið útúr kreppunni.

Kúlulánadrottningin kann ekki að skammast sín.  Það er mikil skömm að því að þetta gjörspillta siðlausa kvendi skuli sitja á Alþingi.


mbl.is Lifa allt af nema kosningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband