31.12.2011 | 02:08
Gjörsamlega vanhæfur ráðherra látinn fjúka, alltof seint.
það er eingöngu vegna órólegu kattanna sem Jón Bjarnason var settur í þetta embætti. Það kom strax í ljós að hann er sérhagsmunapotari og LÍU sleikja. Maðurinn kom engu í verk, hafði ekki neitt samráð við aðra ráðherra og loksins þegar kom kvótafrumvarp úr ráðuneytinu hans þá var það handónýtt og engu líkara en það hafi verið samið á skrifborði hjá LÍÚ. En stjórnin er sterkari eftir að þessum óhæfa ráðherra er kastað út þó ég verði nú að lýsa furðu minni á valinu á fjármálaráðherra. Hvaða djók er það eiginlega ? Hvað hefur þessi Oddný haft fram að færa hingað til? Ekkert sem vart hefur orðið við allavega. Ef það var svona nauðsynlegt að koma kerlingu í ráðherrastól þá hefði ég viljað sjá Ólínu Þorvarðardóttur inni en ekki einhverja liðleskju með tóma afrekaskrá. - Best hefði reyndar verið að Árni Páll hefði einfaldlega tekið við af Jóni án allarra tilfæringa. - og, jú reyndar hefði ég viljað sjá Steingrím í forsætisráðherrann- það fer heldur ekkert á milli mála að hann er leiðtoginn í stjórninni enda ber hann höfuð og herðar yfir alla Íslenska stjórnmálamenn í dag þó svo ég mundi aldrei kjósa VG.
Látinn víkja vegna ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Við skulum gefa Oddnýu séns á að sanna sig.
Tek annars heilshugar undir þessa færslu. Jón Bjarnason hefur valdið skaða þann tíma sem hann hefur setið í þessu embætti.
Hann gaf kvótakóngum þarna um daginn kvóta (man ekki í augnablikinu hvaða fiskur það var) en þar tapaði ríkissjóður einhverjum milljörðum. Það var hjá mér punkturinn yfir i-ið.
Einar (IP-tala skráð) 31.12.2011 kl. 10:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.