27.7.2012 | 12:37
Getur þessi Kínasleikja ekki bara flutt til Peking ?
Það er rétt búið að kjósa hann til næstu fjögurra ára á ný þegar þjóðin situr enn og aftur uppi með vandræðaganginn í Kínasleikjunni. Vegna dýrkunar hans á Kína þar sem svæsin einræðisstjórn situr að völdum sem kúgar eigin þegna og nágrannaríkin þá hefur Nubo nokkur mikinn áhuga á að kaupa hálft Ísland. Þessi Nubo er ekkert annað en framhandleggur Kínastjórnar sem Kínasleikjan á Bessastöðum hefur lagt sig sérstaklega fram um að vingast við. Nú er þjóðin að vakna upp við vondan draum, þessi maður búinn að koma okkur í vandræði rétt einu sinni enn. Ég legg til að Ólafur Ragnar Grímsson flytji til Peking með allt sitt hafurstask og njóti ríkulegra eftirlauna þar.
Einstæð reynsla í Peking | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Lastu fréttina ?
Kína hélt ólympíuleika fyrir 4 árum.
Hvað ertu að bulla hérna ?
Birgir Örn Guðjónsson, 27.7.2012 kl. 14:27
Þorgerður Katrín var þar fyrir 4 árum ,sem menntamálaráðherra,hún hefði ugglaust sagt við fréttamenn ehv.svipað væri hún stödd sem ráðherra nú í London. Ye minn hún aðhyllist ESB.
Helga Kristjánsdóttir, 27.7.2012 kl. 14:48
Þú skemmir þinn eigin málstað með að bulla svona.
Teitur Haraldsson, 27.7.2012 kl. 19:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.