Nei þessi flokkur hlustar ekki -SÍS- Gift- einkavæðing bankanna og íbúðalánasjóður

 

 Öllu því sem getir er í fyrirsögninni tókst framsóknarflokkum  að klúðra, eyðileggja eða stela.  Þetta er ekki frekar en sjálfstæðisflokkurinn stjórnmálaafl.  Þetta eru glæpasamtök og ekkert annað.  Það skipa tvenn skipulögð glæpasamtök ríkisstjórn Íslands nú um mundir.  Hvernig getur þetta gerst ?  Er eitthvað að í menntun þjóðarinnar, er þetta úrkynjun eða hver andskotinn er þetta eiginlega. ?

Vissulega er vitað að fylgi framsóknarflokksins samanstendur ekki beinlínis af menntafólki, þvert á móti er hinn almenni framsóknarmaður miðaldra landsbyggðardurgur, ómenntaður, heldur að jörðin sé flöt og að ESB hafi komið af stað öllum styrjöldum, hungursneiðum og náttúruhamförum sem mannkynið hefur þurft að glíma við. 

Nú er hreinlega skrifað í skýin nýtt hrun, loforð framsóknar um skuldaafskriftir sem engin innistæða er fyrir sér til þess.  Þetta er algjörlega glórulaust kosningaloforð sem mun leiða til óðaverðbólgu, gengishruns og að lokum verður algjört efnahagshrun ekki umflúði.  Þegar það hefur gerst kemur konungur lýðskrumaranna hinn hrokafulli Sigmundur Davíð bólginn og þrútinn af reiði í púltið og kennir Samfylkingunni og Vinstri grænum um eigin klúður.  Það er hans stíll, þessi vitleysingur á eftir að kosta þessa þjóð mikið. 

 


mbl.is Flokkurinn hlusti á gagnrýnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Amen.

hilmar jónsson, 3.7.2013 kl. 19:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband