19.8.2013 | 02:26
Sendillinn í Kaupfélagi Skagafjarðar stórskaðar Ísland
Sendill Kaupfélagsstjórans á Sauðárkróki hefur nú ásamt aðaldjammaranum í Gimli sem reyndar tekur laun sem forsætisráðherra Íslands, stórskaðað Ísland, haft af þjóðinni milljarða á milljarða ofan á örfáum mánuðum. Þá þarf varla að taka fram að orðspor landsins sem ekki var nú of gott fyrir er á hraðri niðurleið eins og lækkað lánshæfismat "skammstafananna" sýnir.
Þessari ríkisstjórn hefur á 3 mánuðum tekist að:
* Stórskaða samband okkar við þær þjóðir sem 90% af gjaldeyristekjum okkar koma frá
* Færa auðjöfrum nokkra milljarða af fé sem ríkissjóður þurfti sárlega á að halda
* Klúðra IPA styrkjunum og setja mörg innlend fyrirtæki og stofnanir í stórkostleg vandræði vegna þess.
* Setja alla vinnu varðandi náttúruvernd síðustu ár í uppnám
* Svíkja hreint ótrúlega mörg kosningaloforð á mettíma.
Dýr verður þessi hörmungarstjórn eftir 4 ár ef hún þá lifir svo lengi, - sem ég ætla rétt að vona ekki.
Ekki litið á Ísland sem ríki í umsóknarferli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.