Mbl.is að dreifa tengli á klám vísvitandi...

...einhvern veginn grunar mig að eini tilgangurinn með þessu sé að ögra Ögmundi.LoL
mbl.is Hvaða klám skoða Íslendingar mest?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða væl er þetta ? Þetta vildu austfirðingar!

Það var nú margbent á alvarleg og óafturkræf  umhverfisáhrif vegna Kárahnjúkavirkjunar.  En austfirðingar linntu ekki látum fyrr en búið var að drekkja stóru landsvæði fyrir virkjun og álver með allskyns hliðaráhrifum eins og eyðileggingu Lagarfljóts.  Þeir sem bentu á þetta voru gjarnan kallaðir kommar og bótapakk að sunnan sem höfðu ekkert betra að gera en að hlekkja sig við vinnuvélar uppi á öræfum og rífa kjaft.  En öllum að óvörum, kannski þó mest austfirðingum, hafði lattelepjandi bótapakkið úr 101 rétt fyrir sér - einu sinni enn.
mbl.is „Vatnasvæðið verulega laskað“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svona var nú ástandið eftir 18 ára valdatíð sjálfstæðisflokksins

Já nákvæmlega.  Þeir sem ausa útúr sér soranum um ríkisstjórnina koma flestir frá hrunflokknum en minni hrunverja nær yfirleitt ekki sérlega langt aftur í tímann.  Ástandið hér á landi eftir fyrstu mánuðina eftir hrunið var þannig að staðan í dag er ekkert annað en kraftaverk.  Tekist hefur að koma í veg fyrir "Spánskt" atvinnuleysi og "Grískan" niðurskurð þó vissulega hafi þurft að skera meira niður en góðu hófi gegnir enda drógust tekjur ríkissjóðs saman um 30-40% eftir hrunið.  Svo hefði staðan óneitanlega verið betri ef Davíð Oddsson hefði ekki  hent um 380 milljörðu útum gluggann úr seðlabankanum- en það er alveg bannað að tala um Davesave.
mbl.is Áttu hvorki fyrir lyfjum né launum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það þýðir ekkert að hafa svona fyrirtæki á landsbyggðinni

Flest fyrirtæki úti á landi eru byggð upp með fé skattborgara í gegnum byggðastofnun.  Eftirlit með þeim er yfirleitt heima í héraði og er þar af leiðandi ekkert eða sáralítið og horft framhjá því þegar eitthvað er að, enda eftirlitsaðilar yfirleitt alltaf vel kunnugir fyrirtækjaeigendunum.  Þetta sást ágætlega í vetur þegar upp komu málin með kúa(skíts)búunum.   Ætli það sé tilviljun að þau voru á Vesturlandi ?

Helvítis dónaskapur í þessu SAS liði (sérfræðingar að sunnan) að tékka á því hvað er í kjötlokunum!  Það má Magnús eiga að hann veit að besta leiðin til að sleppa við að setja hrossakjöt í bökurnar er auðvitað að sleppa alveg kjötinu.Smile  


mbl.is „Ég bara skil þetta ekki“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólagjafastúss framsóknar svínvirkar...

sigmdavid.jpgÞjóðin hefur verið að skrifa óskalista vegna óvarlegra loforða lýðskrumara í hópi pólitíkusa.  Efst á óskalistanum er afnám verðtryggingar og þar á eftir eru skuldaafskriftir.   Framsóknarflokkurinn hefur brugðið sér í gervi jólasveinsins og er búinn að pakka gjöfum sínum snyrtilega inn og tilla á bossann á Sigmundi Davíð og hann veit að þjóðin getur ekki beðið eftir að opna pakkann.

Eina vandamálið er að pakkinn kostar...og hann kostar mikið.  Menn hafa reiknað út að pakkinn kostar lágmark á 3ja hundrað milljarða en Simmi segir að það sé bara seinni tíma vandamál.  Íbúðalánasjóður er á hausnum en samt ætlar framsókn með skuldaniðurfellingu að taka á annað hundrað milljarða af eignasafni sjóðsins.   Heldur virkilega einhver að  þessir peningar verði sóttir eitthvað annað en í vasa skattborgara ?

Nú, bæði sjallar og framsókn hafa komist að því að útlendingar eru vondir kapítalistar og Íslendingar eru góðir kapítalistar.  Þess vegna er í lagi að ræna eignasafni svokallaðra vogunarsjóða af því að útlendingar eiga þá.   Þá kemur næsta spurning:  Halda þessir menn að það verði auðvelt að fá erlent fjármagn í fjárfestingar á Íslandi í framtíðinni þegar það spyrst út að peningum þeirra er stolið af því þeir eru útlendingar ?

Því hefur verið spáð að hrun no 2 sé í aðsigi og því miður sýnist mér það enda ljóst að næsta ríkisstjórn verður skipuð framsóknar og sjálfstæðisflokki.  Íslenska þjóðin er nefnilega  haldin mjög alvarlegu syndromi, að muna ekki lengur en 4 ár aftur í tímann!


mbl.is Framsókn bætir enn við sig fylgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Manneskja sem var ekki í framboði fékk fimmtung atkvæða!!

Vandræðalegum uppákomum á landsfundi "djöfuls snillinganna" ætlar ekki að linna.  Við höfum séð skemmtilegar myndir af "Bófabandinu" dúétt þeirra Árna Johnsen og Bjarna Ben.  Þá er ályktun um hin kristnu gildi með því spaugulegra sem frá sjöllum hefur komið enda fara þeir ekki beinlínis eftir þeim sjálfir, allavega þyrfti einhver að benda þeim á boðorðið "Þú skalt ekki stela".

Þá er það sjálf leiðtogakosningin- Bjarni var nánast einn í framboði , með eitt grínframboð gegn sér sem skoraði ekki hátt.  

Mogginn sneiðir enn og aftur framhjá aðalatriði fréttarinnar, ekki í fyrsta sinn þessa dagana.  Hér var sko ekki um Rússneska kosningu að ræða, nei Hanna Birna sem var ekki einu sinni í framboði fékk tæp 19% atkvæða!  Þetta er algjörlega með ólíkindum og mig rekur ekki í minni til þess að neitt þessu líkt hafi gerst áður hjá Íslenskum stjórnmálaflokki.  Niðurlæging Bjarna er orðin algjör og með hann sem fomann flokksins fer sjálfstæðisflokkurinn helsærður inn í kosningar.  Ég græt það reyndar ekki!


mbl.is Bjarni endurkjörinn formaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hin Íslenska teboðshreyfing

Þröngsýni, afturhald og hægri öfgar lýsa teboðshreyfingunni Amerísku. Sjálfstæðisflokkurinn hefur á þessum landsfundi tekið allt þetta upp í meira mæli en áður og er að mála sig út í horn sem þröngsýnn og afturhaldssinnaður öfga hægriflokkur.  Það er svosem ágætt að hann búi til meira pláss á miðjunni fyrir frjálslynda og nútímasinnaða kjósendur.  Nú vantar bara ályktun þar sem samkynhneigð er fordæmd, þá er þetta algjörlega komið hjá sjöllum.  Gott hjá ykkur!
mbl.is Kristin gildi ráði við lagasetningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stóra fréttin í þessu er ekki í fyrirsögninni!

Nei- stóra fréttin er að sjálfsögðu sú að aðeins 14,6% treysta verðandi forsætisráðherra, Bjarna Benediktssyni!  Þetta er vægast sagt herfileg útreið og eiginlega BOBA eins og Bubbi mundi orða þetta.  Ég hinsvega vona að Bjarni haldi áfram að vera í afneitun og leiði FLokkinn til kosninga því fylgið kemur ekki beint til hans í bílförmum þrátt fyrir óánægju með núverandi stjórn.
mbl.is 58,6% treysta Ólafi Ragnari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnarandstaðan gerir stórt og ljótt stykki í brækurnar

Þór Saari vill ólmur henda stjórnarskránni.  Það vilja reyndar margir og er ekkert að því.  Framsjallar vilja að vísu halda í hana til að tryggja áfram sérhagsmunagæslu sína í verki.

En aumingja Þór gat ekki einu sinni flutt tillögu sem stóðst stjórnarskrána!  Það bendir til þess að hann annaðhvort hefur ekki lesið núgildandi stjórnarskrá eða hreinlega skilur hana ekki.  Hvort sem er, þá er það hjákátlegt og vandræðalegt fyrir þingmanninn.  Þór er að detta útaf þingi og sést vonandi aldrei aftur þar og því er ekki skrítið að hann sé að reyna að gera sig stóran nú á hans síðustu starfsdögum í þinginu.

En viðbrögð framsjalla , vafningsins og kögunarsonar eru enn furðulegri.  Alþjóð veit að þeir vilja ekki nýja stjórnarskrá.  Samt ætluðu þeir að styðja vantrauststillögu sem var lögð fram þar sem flytjandi var ekki ánægður með að lítið gerðist í stjórnarskrármálinu!  Þetta sýnir auðvitað hverslags tækifærissinnar og lýðskrumarar eiga hér í hlut.  Guð blessi Ísland þegar þessir jólasveinar taka við landsstjórninni.


mbl.is Þór dregur tillögu sína til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bangkok já takk!

Líst vel á þetta. 

Ameríkumarkaður er nú sennilega mettaður og hörð samkeppni inná hann en það eru  mörg tækifæri á Asíumarkaði.  Ég veit að það fara þúsundir Íslendinga til Tælands árlega og mundu fagna því að fá flug á þokkalegu verði með ekki meira en einni millilendingu.  Landið er líka algjör paradís frá A-Ö, ódýrt að vera þar og hefur uppá nákvæmlega allt að bjóða sem fólk sækist eftir á ferðalögum.   Frábærar strendur, heillandi menningu,  ótrúlega náttúrufegurð, iðandi stórborgir og ævintýralega markaði.  Fyrir verslunarfíkla eru mollin og markaðarnir í Bangkok himnaríki.

Ódýrasti kosturinn er yfirleitt til London og þaðan með Arabísku flugfélugunum  með millilendingu í miðausturlöndum og kostar þessi pakki yfirleitt um 160 þús. lágmark roundtrip.   SAS hefur flogið beint til Bkk frá Köben en það er að jafnaði mun dýrara og þá er Norwegian Air að hefja bein flug frá Osló á mjög hagstæðu verði en virðast bara fljúga hálft árið.  Þarna eru eflastu tækifæri fyrir Wow air.  Ekki spurning um að miklu fleiri Íslendingar mundu heimsækja Asíu ef samgöngur þangað yrðu auðveldari og ódýrari ef það er mögulegt.


mbl.is WOW skoðar Asíu- og Ameríkuflug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband