Til hamingju sjálfstæðisflokkur og Ísland

Æðislegt fyrir sjálfstæðisflokkinn að fá þjófsnautinn inn í þingflokkinn aftur.  Þingflokkur sjálfstæðisflokksins samanstendur reyndar aðallega af kúlulánaþegum, styrkþegum, skattsvikurum, dæmdum þjófum og útrásarsleikjum.  Þjóðin getur ekki annað en verið stolt yfir því að slíkt fólk sitji á hinu háa Alþingi og safnist að auki allt saman í einn flokk.  Alveg ljóst að 35% fylgi sjálfstæðisflokksins er alltof lítið.  Flokkur sem virðist hafa sem inntökuskilyrði í forystusveit að stunda skipulagða glæpastarfsemi á sko miklu meira skilið, - enda hrunið alls ekki neinum úr þessum flokki að kenna, ónei!

 


mbl.is Þorgerður sest aftur á þing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Uss ekki hafa svona hátt, það er verið að endurreisa gamla ísland

doctore (IP-tala skráð) 13.9.2010 kl. 11:15

2 Smámynd: corvus corax

Þessi manneskja hefur ekkert á Alþingi Íslendinga að gera. Hins vegar er orðið svo að virðingu og hæfni þingsins hnignar í réttu hlutfalli við aukinn fjölda sjálftökuhyskis og uppgjafa-fjölmiðlapakks í hópi þingmanna.

corvus corax, 13.9.2010 kl. 11:30

3 identicon

Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 13.9.2010 kl. 11:36

4 identicon

Þetta er viðbjóðslegt og blaut tuska framan í Íslendinga. Ætlum við að taka þessu þegjandi ?.

Árni Karl Ellertsson (IP-tala skráð) 13.9.2010 kl. 11:51

5 identicon

Þið eruð ágæt hér þessari síðu, ómálefnalegt pakk.

Óskar (IP-tala skráð) 13.9.2010 kl. 12:18

6 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Magnað hvað andstæðingar flokksins eru hræddir við Þorgerði -það er svosem eðlilegt - konan er klárlega einhver mesti málafylgjuþingmaður sem við eigum - þingmaður sem hikar ekki við að taka slaginn þegar henni þykir vegið að þjóðinni - fljót að setja mál í samhengi og sjá heildarmyndina.

Í stjórnarliðinu virðast 2 þingmenn svona reyna slíkt - það eru Katrínarnar en Júlíusdóttir á við ramman reip að draga sem er VG ( svandís icesavedóttir)

Velkomin aftur Þorgerður Katrín

Kosningar strax

Ólafur Ingi Hrólfsson, 14.9.2010 kl. 12:15

7 Smámynd: Óskar

það er sem ég segi, þið sjálfstæðismenn virðist vera algjörlega siðblindir.  Manneskjan fékk 1800 milljóna kúlulán afskrifað.  - en Ólafi finnst í fínu lagi að hún sitji á þingi, - ja hérna, loksins er ég orðlaus!

Óskar, 14.9.2010 kl. 12:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband