Trölladyngjukerfið að fara í gang?

Reykjanesskaginn hefur verið rannsakaður mikið undanfarna áratugi og það er vitað að þar eru ýmsir hlutir í gangi sem mönnum líst ekkert of vel á, sérstaklega í grennd við Krísuvík.  Kleifarvatn hefur verið að minnka og stækka á víxl sem ekki verður skýrt með veðurfarsbreytingum.  Jarðhitasvæðið þar hefur látið öllum illum látum og þá mælist landris á svæðinu sem að öllum líkindum er afleiðing kvikuhreyfinga neðanjarðar. 

Hér er fróðleikur um Reykjanesskagann og eldvirkni á honum.

Svæðið er eitt af 3-4 eldstöðvakerfum á Reykjanesskaganum, eftir því hvort Hengill er talinn með eða ekki, og sennilega það hættulegasta því nyrstu gossprungur í Trölladyngjukerfinu eru rétt sunnan við byggðina í Hafnarfirði.  Gjósi á þeim sprungum þá er flóttatími íbúa í grennd talinn í mínútum frekar en klukkustundum því þunnfljótandi helluhraun getur runnið með ógnarhraða eins og sást í Kröflueldum.  Ekki segja að þetta sé ólíklegt- þetta hefur nefnilega gerst og það eftir landnám nákvæmlega á þessum slóðum.  Það sem gerist einu sinni, það gerist aftur- svo einfalt er það.

það hefur ekki gosið á Reykjanesskaganum í um 750 ár.  Hléið varir ekki að eilífu og reyndar að öllum líkindum mjög stutt í næstu goshrinu á skaganum, varla meira en einhverjir áratugir í mesta lagi.  Gosin þar koma í hrinum sem standa yfir í 2-300 ár og innihalda tugi gosa á þeim tíma.  


mbl.is Ber „sjúkdómseinkenni" eldgosa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rauða Ljónið

Nei það er ekki Trölladyngjukerfið kerfið er Tvíbollar sem renna á Vallarbygð á skömmum tíma.

Rauða Ljónið, 13.10.2011 kl. 18:26

2 Smámynd: Óskar

Einhver misskilningur- það eru þrjú eldstöðvakerfi a Skaganum, Reykjaneskerfið sem er vestast, þá Trölladyngjukerfið með með miðju sennilega við Sveifluháls og sprungur frá því teygja sig í átt að Hafnarfirði.  Brennisteinsfjallakerfið er svo austast, þ.e. Bláfjallasvæðið.   Tvíbollahraun er hinsvegar kennt við eldvarpið Tvíbolla sem reyndar er í Brennisteinsfjallakerfinu.   Ath.  Ég er að tala um Eldstöðvakerfi í færslunni, ekki staka eldstöð.

Óskar, 13.10.2011 kl. 18:40

3 Smámynd: Óskar

Ok ég átta mig á hvað þú átt við.  Tvibollahraun er upprunið í Brennisteinsfjallakerfinu og hefur runnið langa leið alveg niður í Vallahverfi.  Hinsvegar er Trölladyngjukerfið hættulegra að því leiti að í því geta opnast gossprungur mjög nálægt byggð.  Fornar gossprungur í því kerfi eru aðeins um 3-4 km frá byggð í Hafnarfirði, t.d. eldvörpin sem Kapelluhraun er ættað úr.

Óskar, 13.10.2011 kl. 18:46

4 Smámynd: Rauða Ljónið

Já Bruni, Kapelluhraun, Hellnahraun, koma úr því kerfi.

Rauða Ljónið, 13.10.2011 kl. 19:04

5 identicon

Þetta getur byrjað fyrirvaralaust sbr. Heimaey og komið upp hvar sem er nær eða fjær byggð það veit enginn.

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 20.10.2011 kl. 17:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband