2.12.2011 | 16:55
Nú er þá engin kreppa?
Kemur ekki einn villikötturinn með heilabú á við hamstur og segir eins og sjallarnir sem misstu af hruninu að það sé bara allt fljótandi í peningum. Ríkiskassinn er tómur og stórskuldugur eftir slátrun sjálfstæðisflokksins á efnahag landsins. Vinstri grænu kattaridjótin, Guðfríður Lilja, Jón Bjarna og Ögmundur hafa ekki enn gert upp við sig hvort þau ætla að vera áfram í stjórninni eða vera á atkvæðaveiðum með óábyrgri stjórnarandstöðu- slíkt er sérlega líklegt til vinsælda enda þarf enga ábyrgð að axla, bara rífa kjaft, grenja og væla.- Það kunna þessi þrjú svo sannarlega. Það væri nú útaf fyrir sig fróðlegt að sjá hvar Guðfríður ætlar að finna alla þessa peninga.
Fullt af peningum til | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sæll; Nafni !
Illa; ertu áttaður, á raunverulegri stöðu mála, í samfélaginu.
Láta vil ég; um sinn, upphlaup og fjölmiðla kenjar Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur, algjörlega liggja á milli hluta. Hún verður víst; að fá að fljúga - eins og hún er fiðruð, svo sem.
En; hálfu verri, er veruleika firring þín sjálfs, nafni minn.
Skrípillinn; Össur Skarphéðinsson, og ráðuneyti hans, fá upp undir 300 Milljónum króna, viðbótar fjárveitingu, milli áranna 2011, og 2012.
Laun ráðuneyta frammámanna, hafa hækkað, um tugi prósenta, á liðnum 3 árum, umræðulaust, að kalla.
Á sama tíma; hökta einyrkjar, eins og ég (seljandi; á sérverkfærum og almennum, til Málmiðnaðar - Bænda og Útvegs- og Fiskvinnzlu bænda, í 0 - 10% starfi), á hlutabótum frá Gissuri Péturssyni, og njótum ÖNGVRAR fyrirgreiðslu, í hinu svonefnda Banka kerfi sér-íslenzkrar sýndar mennskunnar.
Við erum í rauninni; þrepum neðar, en hinir sjálfskipuðu Paríar austur á Indlandi (sem er lægsta stétt Hindúa), og svo leyfir þú þér, að guma af meintum stórvirkjum, þessarra Andskotans hjúa; Jóhönnu og Steingríms.
Geir; svo og Ingibjörg Sólrún, hefðu þess vegna getað haldið áfram, sinni stjórnarsetu og gaufi, á sínum tíma, ástandið gæti vart, verra verið.
Þannig að; þú ættir að láta af yfirlæti þínu, sem hrósi, í garð stjórnmála skepnanna, nafni minn, og skoða betur málavöxtu, áður en þú sest næst niður, við þitt lyklaborð - og tölvu, ágæti drengur.
Ég hugði mig; rétt liðlega 1/2 aldar gamlan, komast í gegnum mitt lífs hlaup, án þess að verða bónbjargamaður, seinni hluta æfinnar.
Vona; að þú hafir ekki - né muni; hljóta þau illu örlög, nafni minn góður.
Með; kveðjum þó, sem oftar /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 2.12.2011 kl. 20:25
Það er rétt kreppan er ekki komin en hún er að koma og ekkert gert til að stöðva né minka skellin þegar hann kemur!
Sigurður Haraldsson, 3.12.2011 kl. 00:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.