Stórsigur ríkisstjórnarinnar

Náhirðarbloggarar eru þögulir sem gröfin núna enda svo gott sem búið að moka yfir kreppuna sem sjálfstæðisflokkurinn skellti yfir þjóðina.

Hvergi á Vesturlöndum mælist annar eins hagvöxtur um þessar mundir heldur en á Íslandi.  Að vísu þykir mogganum það ekki fréttnæmt og við því var svosem ekki að búast af LÍÚ tíðindum.

Atvinnuleysi er á undanhaldi og lífskjör þjóðarinnar eru að batna ÞRÁTT FYRIR niðurrifshjal stjórnarandstöðunnar.  Þjóðin verslar sem aldrei fyrr fyrir jólin- brjálað að gera segja kaupmenn.

En uss, ekki segja Bjarna Ben og Sigmundi frá, þeir gætu farið í fýlu :)


mbl.is Fjárlög samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Þetta er raun [hag]vaxtarbreyting Danmerkur mældur af Alþjóðagengismarkaðinum breytting á PPP [OER merkir uppgefna landsframleiðslu , mat ríkistjórna]
2.1% (2010 est.)
country comparison to the world: 143
-5.2% (2009 est.)
-1.1% (2008 est.)
Hér er Ísland

Field info displayed for all countries in alpha order.
-3.5% (2010 est.)
country comparison to the world: 209
-6.9% (2009 est.)
1.4% (2008 est.)

-3,0% að meðatali í 3 ár.  Tekjur= Gjöld
 Lækka gjöld ríkissjóðs lækkar líkar tekjur hans.  EF 100 lækkar í 90 þá er það 10% lækkun, ef 90 hækkar svo í 99 þá er það 10 % hækkun. Á 30 árum er Ísland að hrapa hægt og rólega með þessari hagvaxtar aðferð í samanburði.   
Heimild: Betrir Hagstofa enn á Íslandi:https://www.cia.gov/library/publications/the-world-factbook/geos/ic.html

Júlíus Björnsson, 7.12.2011 kl. 20:42

2 identicon

Óskar áttu annan jafnfyndinn? Það er af og frá að það sé helferðarstjórn Samfylkingar og Vinstri Grænna að þakka að hér mælist einhver hagvöxtur.Það er sjávarútvegurinn sem Samfylkingin vill rústa og afhenda ESB sém hér er að skapa hagvöxt og væri hann örugglega mun meiri ef þessi helferðar leppstjórn Evrópusambandsins væri ekki við völd!

Örn Ægir (IP-tala skráð) 7.12.2011 kl. 22:33

3 Smámynd: Óskar

Júlíus það má stilla upp bókhaldinu á ýmsan hátt en engu að síður er klárt hér er allt á réttri leið.  -  Nú auðvitað setja sjallar eins og Örn Ægir kíkinn fyrir blinda augað, vilja ekkert kannast við hrunið sem er ÞEIRRA FLOKK að kenna, og tuða svo í björgunarliðinu sem er búið að vinna hörðum höndum að því að taka til eftir fylliríið þeirra.  Vanþakklátt lið!

Óskar, 8.12.2011 kl. 01:07

4 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Enn einn afturhaldskomminn sem heldur að kreppan hafi orðið til á íslandi....

Óskar Guðmundsson, 8.12.2011 kl. 02:14

5 Smámynd: Júlíus Björnsson

 Vesturlanda almenna neytenda kreppan varð ekki til á Íslandi. Hinsvegar vegna stjórnsýsluhefða hér frá 1911, er 90% af kreppunni hér Íslandi sjálfu að kenna. Það er munur á samkeppni og mótkeppni. 

Júlíus Björnsson, 8.12.2011 kl. 15:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband