22.2.2013 | 14:26
Stóra fréttin í þessu er ekki í fyrirsögninni!
Nei- stóra fréttin er að sjálfsögðu sú að aðeins 14,6% treysta verðandi forsætisráðherra, Bjarna Benediktssyni! Þetta er vægast sagt herfileg útreið og eiginlega BOBA eins og Bubbi mundi orða þetta. Ég hinsvega vona að Bjarni haldi áfram að vera í afneitun og leiði FLokkinn til kosninga því fylgið kemur ekki beint til hans í bílförmum þrátt fyrir óánægju með núverandi stjórn.
58,6% treysta Ólafi Ragnari | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það er full ástæða til að óska Sjálfstæðismönnum til hamingju með formanninn, þeir eiga hann svo sannarlega skilið.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 22.2.2013 kl. 15:37
Já það má segja að í þessu tilfelli hæfi skel kjafti. Reyndar er maður að heyra útundan sér í dag að verið sé að plotta valdarán í höllinni og að BB verði ekki formaður lengur en komandi helgi lifir!
Óskar, 22.2.2013 kl. 15:43
Hallarbylting væri synd, ég vil endilega hafa Bjarna áfram.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 22.2.2013 kl. 16:40
Ég vill líka hafa hann áfram. Besta fylgisfæla á íhaldið sem til er um þessar mundir.
Óskar, 22.2.2013 kl. 17:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.