Færsluflokkur: Bloggar
5.9.2011 | 00:27
Sammála Birni Bjarnasyni
![]() |
Sakar Ólaf Ragnar um smjörklípu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
3.9.2011 | 06:24
Orð (ó)heppinn forseti og stórhættuleg stefna
Forseti landsins hefur vart opna fyrir túllann á sér undanfarin ár án þess að valda stórskaða. Nú ræðst hann með offorsi á vini okkar í Evrópu og Bandaríkjunum en mærir í staðinn einræðisstjórn sem hikar ekki við að láta skriðdreka keyra yfir eigin landsmenn. Ekki ætla ég að dæma þennan sjúga pu´ng eða hvað hann heitir, vel má vera að auðuga ljóðskáldið sé ágætis maður, það eru margir Kínverjar þó stjórnvöl þar séu á öðru plani. Gleymum ekki að þessi maður komst til frama í Kínveska kommúnistaflokknum og án hans blessunar ætti hann ekki bót fyrir borina á sér.
-En sú stefna sem hér hefur verið mörkuð undanfarin ár að leyfa útlendingum að eiga eins og þeir vilja af Islensku landi , það er ekki gáfulegt. Ísland á að vera fyrir Íslendinga í þessum skilningi. Mörg lönd hafa þessa stefnu þ.e. leyfa ekki útlendingum að fjárfesta í landi. Get ég nefnt Tæland sem dæmi. Þar mega útlendingar ekki kaupa land en geta hinsvegar leigt það til einhverra áratuga. Það þarf ekkert að vera neinn öfgaþjóðernissinni til að hafa þessa skoðun , það tel ég mig seint verða, málið er bara að þegar útlendingar eignast hér land i massavís þá er ekkert aftur snúið. Smámsama hverfa vötnin, dalirnir og fjöllin úr eigu þjóðarinnar- gerist kanski hægt og það er ólíklegt að við getum keypt þetta aftur. Alþingi á að setja lög sem bannar erlendum ríkisborgurum að kaupa Íslenskt land, punktur.
![]() |
Fagnar kínverskum fjárfestingum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.9.2011 | 11:02
Eitthver mesta náhirðarvæl fyrr og síðar
Náhirðin og LÍÚ ætlar sko ekki að gefa tommu eftir af stolinni auðlynd til baka til þjóðarinnar. Eitt af höfuðvígjum náhirðarinnar, Bæjarstjórnin í Vestmannaeyjum, hefur líkt kvótafrumvarpinu við sjálft Tyrkjaránið þegar fjöldi fólks var drepinn eða hneppt í ánauð. Lægra er nú vart hægt að leggjast en að líkja saman fjöldamorðum annarsvegar og sjálfsögðum skilum á auðlynd til þjóðarinnar til baka hinsvegar. En vælukór LÍÚ er gjörsamlega á útopnu þessa dagana- þetta lið er alveg milljón.
Engin atvinnugrein hefur komið eins vel útúr hruninu og sjávarútvegurinn. Ekki nóg með að þessir aðilar fengu á sínum tíma gjöf upp á hundruðu milljarða þegar kvótafrumvarpið varð að lögum, gengi krónunnar síðustu ár hefur verið algjör guðsgjöf fyrir þessa aðila sem ekki láta hvarfla að sér að skila einhverju af hagnaðinum til samfélagsins. Höfum í huga að þetta er liðið sem vill halda í handónýta krónu því hún nýtist nákvæmlega engum nema þeim. Þetta er liðið sem vill ekki fyrir nokkurn mun ganga í ESB því þá yrði betra eftirlit með ránum þessara dela.
Mogginn hamast sem aldrei fyrr við að halda uppin málstað LÍÚ og náhirðarinnar, málstað sem gengur út á að arðræna þjóðina, sjúga öll verðmæti frá þjóðinni og færa þau í hendur nokkurra vellauðugra fjölskyldna. Þetta heitir á góðri Íslensku þjóðarrán.
![]() |
Eitthvert mesta áfall fyrir atvinnulífið fyrr og síðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.8.2011 | 09:49
Hvað er satt og hvað er logið ?
![]() |
Voðaverk Gaddafis gerð opinber |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.8.2011 | 10:23
Evra vs dollar 1,4420 - maðurinn bullar
![]() |
Evran er að hrynja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.8.2011 | 17:01
Er þetta haft eftir 5 ára barni ?
![]() |
Getur verið að þeir fyrirfinnist ekki? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.8.2011 | 13:33
Kvótaerfinginn að missa sig
Lilja kvótaerfingi vill fyrir alla muni halda krónunni enda fyrirsjáanlegt að krónan mun hrynja þegar gjaldeyrishöftin verða afnumin með tilheyrandi hagnaði fyrir LÍÚ gengið og kvótagreifa. það henta Lilju engan veginn að taka upp annan og traustari gjaldmiðil. Það hentar heldur ekki LÍÚ, Bjarna Ben, Sigmundi eða öðrum fjármagnseigendum.
Gott fólk, það að Lilja skuli þykjast starfa fyrir almenning í þessu landi er hlægilegt. Sjálf er hún erfingi af kvótaauðæfum og hvert einasta verk sem hún hefur unnið á þingi hefur verið til þess fallið að styrkja það sem hún kallar fjármagnseigendur. Þessi manneskja á Íslandsmet ef ekki hreinlega heimsmet í lýðskrumi.
![]() |
Lengra er í kosningar en margur hélt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.8.2011 | 12:31
Mannvonska
![]() |
Framseldur burt frá tveggja ára dóttur |
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana. |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.8.2011 | 15:38
Hið árlega Vestfjarðavæl hafið
Það er gömul saga að með reglulegu millibili byrja Vestfirðingar að væla, betla og skæla. Atvinnuleysi á Vestfjörðum er langt undir landsmeðaltali og í raun eini landshlutinn sem hefur haldið eðlilegu atvinnustigi i gegnum kreppuárin.
Svo "hóta" þeir því að flytja á brott! Þvílík hótun, hvert ætlið þið að fara og HVAR ætlið þið að fá vinnu? Get sagt ykkur það að hana er ekki að hafa hér í Reykjavík þar sem atvinnuleysi er um 10%.
![]() |
Segja neyðarástand ríkja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.8.2011 | 16:49
Is it true, - Is it over ?
Einn spádóma Nostradamusar hljóðar svo:
Musterin (bankarnir) þar sem Vesturlandabúar geyma fjársjóði sína á leyndum stöðum verða brotin upp af hungruðum lýðnum sem hrifsar til sín auðæfin og vinnur ótrúleg spellvirki. Meðal þeirra verða hræðilegar óspektir. X:81
Það hefur legið fyrir í meira en áratug að efnahagur Vesturlanda er byggður á sandi og haldið uppi með leikriti skipulögðu af verðbréfaguttum og bönkum. Nú er það að renna upp fyrir okkur að ástandið verður ekki lengur falið. Evrópa er að hrynja innanfrá, breytir í raun engu hvort Evrópusambandið hefði verið við líði eða ekki. Bandaríkin eru máttvana.
Kína og önnur Asíuríki standa uppi með pálmann í höndunum. Öll framleiðsla er komin til Asíu, - það er nánast ekkert framleitt á Vesturlöndum lengur - nema verðlaus hlutabréf. Það sem er að gerast í dag er bara byrjunin.
Heimskreppur hingað til hafa leitt af sér stórstyrjaldir.
Annar spádómur Nostradamusar:
Vegna dýrtíðar munu menn fella tár.
Holdi manna verður breytt í ösku.
Hinir kristnu munu valda Eyju faróanna mæðu.
Síðan birtist vofa stríðsins í Rhodos.
V:16
![]() |
Algjört hrun á mörkuðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)