Sjálfstæðisflokkurinn leyndi ljótum upplýsingum fram yfir kosningar

Enn fær almenningur í hausinn skítlegt eðli sjálfstæðisflokksins og stórtjón af hans völdum í hausinn.  Þessar upplýsingar koma fram 3 dögum eftir kosningar.  Það liggur alveg ljóst fyrir að sjálfstæðisflokkurinn sat á þessum upplýsingum fram yfir kosningar, borgarbúar máttu ekki fyrir nokkurn mun vita að nauðsynlegt væri að stórhækka heita vatnið.  Sjálfstæðisflokkurinn verður jú að geta kennt nýjum stjórnarflokkum í borginni um að hækka gjaldskrána.

Tjónið sem þessi flokkur hefur valdið þjóðinni er fyrir löngu orðið óbætanlegt, munar kannski ekki um nokkra milljarða í viðbót svona hér og þar.  Rússneski kommúnistaflokkurinn var bannaður vegna þess skaða sem hann olli Rússnesku þjóðinni, ég held að tjónið sem sjálfstæðisflokkurinn hefur valdið íslensku þjóðinni efnahagslega sé ekki minna og legg því til að þessi glæpasamtök verði bönnuð.  Sjálfstæðisflokkurinn er ekki stjórnmálaflokkur, þetta eru skipulögð glæpasamtök.


mbl.is „Gjaldskráin verður að hækka“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

mikið til í þessu hjá þér Nafni

Óskar Þorkelsson, 3.6.2010 kl. 17:18

2 Smámynd: Óskar

Já ég verð að skammast reglulega yfir sjálfstæðisflokknum.  Ég hreinlega skil ekki hvað fer fram í höfðinu á fólki sem kýs þetta..

Óskar, 3.6.2010 kl. 22:48

3 Smámynd: Óskar Þorkelsson

það sem fer fram í hausnum á þeim er hræðslan við hið óþekkta.. þau þora ekki að kjósa neitt annað því þau eru alin upp í bullinu. Þau vita vel að sjallarnir eru persónugerfingur spillingar og græðgi en óttast það að gera upp við flokkinn sinn.. ekki ósvipað og barinn húsmóðir verndar ofbeldismanninn fram í rauðan dauðann..

Óskar Þorkelsson, 4.6.2010 kl. 16:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband