15.7.2011 | 13:18
Hvar eru nöldurseggirnir núna ?
Vegagerðin er hreinlega að vinna afrek. Hlaupið var vart afstaðið þegar ferðaþjónustan og jafnvel þingmenn sjálfstæðisflokksins og svo ekki sé minnst á alla náhirðarbloggarana, hjóluðu í Vegagerðina og sökuðu hana um seinagang og kunnáttuleysi. Ríkisstjórnin fékk svo sinn skammt af skömmum.
Mér þætti gaman að sjá þetta lið sjálft byggja 120 metra langa brú á innan við viku! Þeir sem verst létu eiga að skammast sín og taki það til sín sem eiga.
Brúin tilbúin um helgina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sæll Óskar minn. Mikið er gaman að sjá hvað þú ert ánægður með 'afrek' Vegagerðarinnar.
Það væri álíka afrek ef þú gætir nú rifjað upp föðurnafnið þitt - og ekki sakar ef þú gætir nú einu sinni farið rétt með:
'Brúin verður 156 m löng, byggð í 9 mislöngum höfum en því ráða lengdir stálbitanna sem voru til á lager Vegagerðarinnar.'
Hilmar Þór Hafsteinsson (IP-tala skráð) 15.7.2011 kl. 14:17
Já Hilmar - náhirðarhælbítar eins og þú leynast víða á blogginu. Aldrei ánægðir, sítuðandi út í ríkisstjórnina og opinbera aðila - horfa aðeins á INN og lesa bara Dabbapóst. Mér finnst þið eiga skilið að vera á örorkubótum fyrir að vera svona sjúkir.
Óskar, 15.7.2011 kl. 14:36
Óskar, 15.7.2011 kl. 14:36: Þakka hlýjar kveðjur Skari minn. Fyndið að réttmæt kröfugerð skattgreiðenda skuli verið túlkuð af samspilltum föðurleysingja sem 'Aldrei ánægðir, sítuðandi út í ríkisstjórnina og opinbera aðila...'
Verkefni almennings á að vera að halda stjórnvöldum á tánum, reka þau áfram og gera réttmætar kröfur.
Stjórnarsleikjur eins og þú enda sjálfsagt á sjálftökulaunum hjá Vegagerðinni.
Hilmar Þór Hafsteinsson (IP-tala skráð) 15.7.2011 kl. 14:50
Rólegur Hilmar. Ekki mér að kenna þó bæturnar þínar séu lágar.
Óskar, 15.7.2011 kl. 15:08
Óskar, 15.7.2011 kl. 15:08: Hmmm... Þú segir mér fréttir. Vilt þú ekki líka upplýsa mig um hver er að greiða mér þær Skari minn? Eða er þetta bara enn einn heilaspuninn í þér?
Hilmar Þór Hafsteinsson (IP-tala skráð) 15.7.2011 kl. 15:51
Sæll; Nafni minn, Haraldsson - og aðrir gestir, þínir !
Nafni !
Allsendis óþarft; af þinni hálfu, að troða ilsakar, við Hilmar Þór. Hann er að minnsta kosti; ívið kurteisari í orðavali en ég, þegar ég er að lýsa illum eiginleikum vina þinna, ræksnanna; í Stjórnarráði - og á Alþingi, ágæti drengur. Gildir; um uppsóp, ALLRA gömlu flokka skrípanna, að sjálfsögðu.
Hilmar er; einn þeirra raunsæis manna, sem sjá hlutina, í skýru ljósi.
Enn; sem fyrr, vil ég hvetja þig, til þess að láta af Náhirðar talinu, þar sem slík iðkan, er bein móðgun, við Dánarheima, nafni minn góður.
Með beztu kveðjum; sem jafnan, úr Árnesþingi /
Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 15.7.2011 kl. 17:23
illsakar; átti að standa þar. Afsakið; Helvízka fljótfærnina, piltar.
ÓHH
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 15.7.2011 kl. 17:37
Engar illsakir er ég að troða nafni en er harðorður þegar menn geta ekki staulast til að viðurkenna það sem vel er gert sama hver á í hlut. Kveðja úr 101!
Óskar, 16.7.2011 kl. 19:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.