21.10.2011 | 12:56
Villimenn
Þó Gaddafi hafi ekki verið neinn engill þá er ljóst að þessir svokölluðu "herir" uppreisnarmanna samanstanda af ofbeldislýð og villimönnum. Þetta lá fyrir löngu áður en atburðirnir urði í gær. Þeir hafa stundað skipulögð fjölamorð og pyntingar á andstæðingum sínum. Það er reginhneyksli að vesturlönd séu að veita þessum villimönnum hernaðarlegan stuðning. Það er ekki nokkur minnsta von til þess að almennir borgarar í Líbýu eigi eftir að hafa það betra undir stjórn þessa skríls heldur en undir stjórn Gaddafis. Þessi aftaka, forleikurinn og eftirleikurinn í gær var hreinn og beinn viðbjóður og skiptir þá engu hvert er fórnarlambið. Það má ætla að allir þeir sem lenda i höndunum á þessum villimönnum fái svipaða meðferð, sekir eða saklausir.
Dauði Gaddafis verði rannsakaður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ofbeldislýður og villimenn segir bloggari sem er auðvitað þaulkunnugur öllu í Líbíu. Hvað heita þeir?
corvus corax, 21.10.2011 kl. 13:05
Mér dugar að sjá það sem sýnt hefur verið í sjónvarpi af þessum skríl til að mynda mér skoðanir. Að auki hefur margkomið fram í fréttum að uppreisnarmenn taka menn umvörpum af lífi án dóms og laga og pynta þá. Svona haga sér bara villimenn, jafnvel þó það sé stríð í landinu.
Óskar, 21.10.2011 kl. 18:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.